Skræða ehf

  • Lausnir
  • Þjónusta
  • Um okkur
  • Fréttir
  • Aðstoð
  • Hafa samband

Aðgangur að sjúkraskrám á landsvísu

by Eyþór Kristleifsson / Thursday, 27 August 2020 / Published in eGátt, sjúkraskrá

Skoðaðu gögn frá öðrum stofnunum

Með eGátt geturðu flett upp í sjúkraskrám allra helstu heilbrigðisstofnana landsins.  Allar komur sjúklinga á Heilsugæsluna, Landspítalan oflr eru aðgengilegar með einu músarsmelli.  Gögnin eru sótt í rauntíma sem þýðir að um leið og gögnin hafa verið vistuð á viðkomandi stofnun verða þau aðgengileg í eGátt.

Rauntímadeiling sjúkraskrár

eGátt býður nú uppá deilingu sjúkraskrárgagna í rauntíma með öllum helstu heilbrigðisstofnunum landsins.  Deilingin virkar í báðar áttir, þ.a. aðrar stofnanir sjá gögn frá þinni stofnun og þú sérð gögn annarra stofnana.

Um er að ræða tímamótalausn í íslensku heilbrigðiskerfi.  Nú er í fyrsta skipti hægt að lesa gögn frá Sögu kerfinu án þess að kaupa aðgang að Sögu.

eGátt er fyrsti og eini hugbúnaðurinn í heiminum sem getur skipst á sjúkraskrárgögnum við sjúkraskrárkerfið Sögu í rauntíma.

Deildu gögnum með öðrum stofnunum

Aðrar stofnanir geta nálgast sjúkraskrár þinna sjúklinga í rauntíma með öruggum hætti.  Gögn um komur skjólstæðinga þinna verða þannig aðgengilegar á öðrum stofnunum þegar þeir sækja þjónustu þar.

Um eGátt

eGátt er hugbúnaður hannaður, þróaður af og í einkaeigu Skræðu ehf.  Engir utanaðkomandi aðilar, hvorki opinberir- né einkaaðilar hafa styrkt eða komið að þróun hugbúnaðarins.

Skræða er leiðandi aðili á markaði hugbúnaðarlausna og upplýsingatækni til reksturs heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

  • Tweet

What you can read next

Innleiðing PMO í Domus Medica
Fyrirmæli Landlæknis um lágmarksskráningu á læknastofum
TeleMed – Ný lausn fyrir fjarlækningar

Warning: Undefined variable $user_ID in /var/www/vhosts/xn--kvensjkdmalknir-7lb1tpe.is/skraeda.is/wp-content/themes/kallyas3/comments.php on line 73

You must be logged in to post a comment.

TOP